Tveir pólskir ríkisborgarar eru áfram í haldi vegna rannsóknar á manndrápi í Vallargerði á Kársnesi í ágúst. mbl.is greindi fyrst frá. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að þeir verði það til 26. nóvember.Mennirnir eru að hennar sögn á fertugsaldri.Þeir voru báðir handteknir í útlöndum, annars vegar í Póllandi og hins vegar á Spáni. Elín Agnes segir að annar þeirra hafi verið búsettur á Íslandi um tíma en ekki er vitað hve lengi. Lögregla telur ekki að hinn hafi búið hérlendis.„Rannsókninni miðar bara vel,“ segir Elín Agnes. Lögregla bíður frekari gagna. „Það tekur alltaf tíma.“Ráðist var á pólskan ríkisborgara á fimmtugsaldri á Kársnesi í Kópavogi 9. ágúst sem lést síðar af sárum sínum. Málið er talið te