Viðvaranir vegna hríðar á morgun og laugardag

Gular og appelsínugular viðvaranir verða í gildi frá því síðdegis á morgun vegna hríðar á stórum hluta landsins.Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Vestfirði og allt Norðurland frá klukkan 14 á morgun. Í framhaldinu tekur gildi gul veðurviðvörun við Breiðafjörð, Faxaflóa og á miðhálendinu.Annað kvöld versnar veðrið fyrir norðan og appelsínugul viðvörun verður í gildi fram yfir miðnætti á Norðausturlandi. Þá verður gul viðvörun á Austurlandi.Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland snemma morguns á laugardag og varir fram undir hádegi. Þar gætu hviður farið í allt að 50 m/s og fólki er ráðið frá ferðalögum. Staðbundið tjón gæti orðið á mannvirkjum.Hægt er að lesa nánar um viðvaranirnar á vef Veðurstofunnar.
Viðvaranir vegna hríðar á morgun og laugardag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar