Efla þarf sérfræðiþekkingu í öllu kerfinu á málum sem varða kynferðisbrot gegn börnum, sérstaklega á netinu og samfélagsmiðlum.Þetta segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR.Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið.Aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.Þetta kom fram í þætti Kveiks þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum. MIKILVÆGT AÐ GETA TEKIST Á VIÐ NÝJA BROTAVETTVANGA Svala segir internetið og samfélagsmiðla vera nýja brotavettvanga sem mikilvægt er að takast á við. Mikilvægast af öllu sé að mönnun lögreglunnar sé þannig að hægt sé að sinna rannsóknum og forvirkum rannsóknum.„Og að tæknibúnaður lögreglunnar sé þannig að þeir geti sinnt þessum rannsóknum af einhverju viti.“Hún segir einnig nauðsynlegt að sérkunnátta skili