Vill áfrýja umdeildum sýknudómi í nauðgunarmáli til Hæstaréttar

Ríkissaksóknari hefur óskað eftir leyfi til að áfrýja klofnum sýknudómi Landsréttar í nauðgunarmáli til Hæstaréttar.Þetta staðfestir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari við fréttastofu, en Vísir greindi fyrst frá.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi mann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem sýknaði hann þar sem tveir dómarar af þremur töldu ósannað að hann hefði brotið á konunni því hún hefði samþykkt að hann mætti beita hana hörku í kynlífi.Þriðji dómarinn vildi sakfella manninn og sagði hann hafa beitt hana mun meira ofbeldi en hún hafði samþykkt.Meðal áverka sem konan hlaut voru rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind.Málið hefur vakið mikla athygli í samfélaginu. Meðal þeirra sem gagnrýndu dóm Landsréttar voru samtökin
Vill áfrýja umdeildum sýknudómi í nauðgunarmáli til Hæstaréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar