Heimsóknarbann vegna covid-smita á Landakoti

Heimsóknir til sjúklinga á Landakoti eru bannaðar tímabundið vegna covid-smita. Andri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Landspítalans, segir auknar smitvarnir bundnar við öldrunardeildina.Takmarkaðar heimsóknir og grímuskylda hafa verið frá því í síðustu viku eftir að nokkrir sjúklingar á sömu deild greindust með COVID-19. Tilfellin eru bundin við eina deild og aðgerðir undanfarinna daga miðast að því að koma í veg fyrir útbreiðslu eins og hægt er.Andri segir að smitum fjölgi jafnan á veturna. Sjúkdómurinn geti lagst þungt á eldra fólk og veikburða, eins og inflúensa.
Heimsóknarbann vegna covid-smita á Landakoti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar