Maður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi eftir að hafa ekið skotbómulyftara á aðra bifreið á horni Lækjargötu og Vonarstrætis árið 2023.Maðurinn ók lyftaranum undir áhrifum slævandi lyfja og var með gaffla vinnuvélarinnar í 70 sentimetra hæð þegar áreksturinn varð. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa voru báðir ökumenn undir áhrifum lyfja. Í skýrslunni kom einnig fram að vinnuvélin hefði verið óskráð og óheimilt að aka henni í almennri umferð. Meginorsök slyssins var þó talin sú að Marek hefði verið undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til aksturs.Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því ekki hægt að segja til um ástæður hans. GAGNRÝNI Á FRAMGANG RANNSÓKNAR Maðurinn sem lést hét Marek Dementiuk og var 37 ára gamall og lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn.Fré