Umferðartafir vegna malbikunarframkvæmda hafa gert ökumönnum lífið leitt í höfuðborginni, aðstoðaryfirlögregluþjónn segir dæmi um að ökumenn hafi gefist upp, skilið bílinn eftir á bílastæði og gengið rest. Fyrsti snjórinn féll í höfuðborginni í morgun, lögregla biðlar til ökumanna um að fara varlega en eitt slys hefur orðið vegna hálku það sem af er degi.