Litlar friðarhorfur í Úkraínu

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um nokkuð af því sem er efst á baugi í erlendum fréttum. ÁRANGURSLÍTILL FUNDUR Í ABU DHABI Tveggja daga fundi sendimanna Bandaríkjaforseta með fulltrúum Rússlands og Úkraínu er lokið. Fulltrúar Evrópuríkja voru á hliðarlínunni. Eini áþreifanlegi árangurinn er að samið var um fangaskipti og að viðræðum skuli haldið áfram. Ekkert var getið um hvar eða hvenær. Zelensky Úkraínuforseti hefur þó sagt að þokast hafi áfram. ZELENSKY ÞINGAÐI MEÐ NORRÆNUM LEIÐTOGUM Úkraínuforseti átti fundi með leiðtogum norrænu ríkjanna fimm í Kaupmannahöfn sem lofuðu áframhaldandi stuðningi við Úkraínu. Fréttaskýrendur segja að aftur ríki full samstaða á Norðurlöndum eftir að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dan
Litlar friðarhorfur í Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar