Hækka ætti viðbúnaðarstig hér á landi vegna netógna að sögn sérfræðings hjá Defend Iceland. Gervigreindarhakkari sem fyrirtækið þróaði fann hundruð veikleika í þúsundum íslenskra tölvukerfa og gætu upplýsingar verið undir sem skipta allt þjóðfélagið máli. Guðmundur Karl Karlsson, sérfræðingur í rannsóknum og þróun, segist sjálfur ekki hrifinn af því að tengja heimilistæki sín við netið og nauðsynlegt sé að uppfæra tæki þegar kallað er eftir því. Ítarlega er fjallað um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni.