Bíll hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi

Bíll hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi rétt norðan við Hamraborg á ellefta tímanum. Þetta staðfestir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu. „Við erum enn að meta aðstæður þarna.“Einn var í bílnum og ekki er vitað um ástand hans.Einn dælubíll og einn sjúkrabíll voru sendir á vettvang. Guðjón segir að slökkvilið sé enn við störf þar.
Bíll hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar