Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir allan gang á því hvaða áhrif verkfallsboðun hafi í viðkvæmum kjaraviðræðum. Embættinu hefur ekki borist verkfallsboðun flugmanna Icelandair og því hafa samninganefndir ekki verið boðaðar á fund sáttasemjara.Flugmenn Icelandair í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir í leiguflugi félagsins. Þær eiga að hefjast á miðnætti 20. nóvember, eftir rúma viku, og taka bæði til farþega- og fraktflugs þar sem bæði brottfarar- og áfangastaðir eru utan Íslands. HÆTTA Á AÐ VIRKI Í AÐRA ÁTT „Það er ekki alltaf til þess fallið að greiða úr deilum, þegar menn fara að munda þetta vopn,“ segir Ástráður spurður um hvaða áhrif verkfallsboðunin gæti haft á gang kjaraviðræðna. > Stundum halda menn að þetta ýti við samni