Íslensk kona, 38 ára að aldri, hefur verið ákærð fyrir tvö umferðarlagabrot sem framin voru á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Konan er meðal annars sökuð um að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og undir áhrifum fjölmargra fíkniefna. Fyrra atvikið átti sér stað 20. júní 2025 þegar lögregla stöðvaði akstur konunnar á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi. Samkvæmt ákæru mældust alprazólam,...