Landsbankinn spáir 6% verðbólgu

Landsbankinn spáir lækkun vísitölu neysluverðs um 0,41% í nóvember og því að ársverðbólga hækki í 6,0%.Þetta kemur fram í hagsjá bankans.„Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni,“ segir í tilkynningu.Landsbankinn spáir enn fremur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu ákvörðun. Verðbólga í október var 5,9% og stóð í stað milli mánaða. Rúv / Ragnar Visage
Landsbankinn spáir 6% verðbólgu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar