Vegaframkvæmdum frestað vegna veðurs

Vegagerðin hefur frestað framkvæmdum í Reykjavík vegna veðurs. Til stóð að gera við ramp frá Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut og ráðast í framkvæmdir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs.Það hefur nú verið slegið af vegna veðurs. Fyrsti snjór vetrarins féll í höfuðborginni í morgun.Miklar umferðartafir voru í borginni í gær vegna framkvæmda. Þá var rampurinn frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg lokaður. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, sagði við fréttastofu að tafirnar hefðu orðið miklu meiri en við var búist.
Vegaframkvæmdum frestað vegna veðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar