Úkraínskir hermenn á víglínunni í austurhluta landsins eiga aftur í vandræðum með dróna sína og virðist sem að hraðatakmarkanir hafi aftur verið settar á Starshield á svæðinu. Vólódímír Selenskí forseti segir þetta hafa staðið yfir í nokkra daga og að þetta komi niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum og árásum Úkraínumanna á Rússa í Úkraínu.