Svona verður sinnepsflaskan til

Sláturfélag Suðurlands var stofnað 1907 og þar var hafin framleiðsla á pulsum ári síðar. 1937 opnaði Jón Sveinsson pulsuvagn við Kolasund í Reykjavík og upp frá því varð íslenska vínarpulsan geysivinsæl. Saga SS sinnepsins er samofin þessari sögu og flöskuna eða brúsann eftir því hvort fólk vill kalla umbúðirnar má finna í ísskápum á mörgum íslenskum heimilum. Þessa hvítu með rauða pulsukallinum. Flaskan er framleidd hjá Vörumerkingu í Garðabæ eftir kúnstarinnar reglum.
Svona verður sinnepsflaskan til

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar