„Allir gestir skulu hafa þögn og votta virðingu sína.“Þetta hrópaði hermaður að Pete Hegseth, hermálaráðherra Bandaríkjanna, í gær við gröf hins óþekkta hermanns, þar sem hann stóð heiðursvörð. Hegseth var þar í tilefni af vopnahlésdeginum, sem haldinn er hátíðlegur ár hvert til minningar um fallna hermenn.Hegseth sést á myndskeiði stilla sér upp fyrir myndatöku með hópi fólks við innganginn og heyra mátti fliss og hlátrasköll, sem hermanninum hefur ekki þótt við hæfi.Myndskeið af þessu, sem sjá má hér að ofan, hefur farið sem eldur í sinu um netheima.