Fyrsti snjór vetrarins þekur höfuðborgina

Fyrsti snjór vetrarins féll á höfuðborgarsvæðinu í morgun.Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að snjórinn gæti þó bráðnað í höfuðborginni eftir því sem líður á daginn. „Hann gæti bráðnað seinni partinn. Það hlýnar og fer að rigna ofan í þetta.“Búist er við snjókomu nokkuð víða á landinu í dag. Eftir því sem líður á daginn færist snjókoman austur.Seinnipartinn á morgun versnar veður nokkuð. Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hríðarveðurs á landinu norðanverðu.Gular viðvaranir verða í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra og miðhálendinu. Þá verður appelsínugul viðvörun í gildi vegna norðanstórhríðar á Ströndum og Norðurlandi vestra annað kvöld.
Fyrsti snjór vetrarins þekur höfuðborgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar