Mercedes-Benz S-Class-bílar af árgerð 2021 og nýrri hafa verið innkallaðir vegna hættu á leka í bremsuslöngum. Lekinn getur skert bremsugetu bílanna og aukið hættu á slysum. Mynd: HSU Askja hefur sent Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) tilkynningu um innköllunina. Samkvæmt tilkynningunni er hætta á að bremsuslöngur að framan leki, sem getur haft áhrif á virkni hemlakerfisins. Askja mun skipta um bremsuslöngurnar...