Söng- og leikkonan Katla Þórudóttir Njálsdóttir hefur ásamt móður sinni, Þóru Pétursdóttur, stofnað nýtt félag sem ber heitið Hundraðp Takk slf. Félagið var skráð í hlutafélagaskrá í október síðastliðnum samkvæmt Lögbirtingablaðinu. Samkvæmt nýskráningu félagsins er tilgangur þess að sinna fjölbreyttri listrænni starfsemi, meðal annars sviðslistum, sviðsframkomu, uppsetningu leiksýninga og framleiðslu stuttmynda og annars myndefnis. Þóra er skráð sem ábyrgðaraðili en...