Að minnsta kosti tveir létust og 17 slösuðust þegar þriggja hæða bygging hrundi í Flatbush-hverfinu í Brooklyn í New York síðdegis í gær. Fjórir hinna slösuðu eru í lífshættu, að sögn yfirvalda. Að minnsta kosti sjö börn urðu fyrir áhrifum af hruninu. Ekki liggur fyrir hvort eitthvert þeirra sé meðal hinna látnu né hversu margir kunna enn að vera fastir...