Flugmenn samþykktu verkfallsaðgerðir um leiguflug

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug félagsins. Verkfallið hefst 20. nóvember.Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna samþykktu verkfallið með tæpum 94% atkvæða.Í tilkynningu FÍA til félagsmanna segir að leiguflugið taki bæði til farþega- og fraktflugs þar sem brottfarar- og ákvörðunarstaðir eru utan Íslands og þar sem Icelandair Group eða Icelandair eða dótturfélög þeirra annast ekki sölu á sætum eða fraktrými flugvélarinnar, heldur þriðji aðili.Fréttin verður uppfærð.
Flugmenn samþykktu verkfallsaðgerðir um leiguflug

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar