Íslenska ríkið mun ekki selja læknishúsið í Laugarási í Bláskógabyggð beinni sölu til yfirlæknis heilsugæslunnar á Flúðum í Hrunamannahreppi, líkt og til stóð. Tillaga að slíkri sölu var í fjáraukalögum fyrir þetta ár. Þessi heimild er hins vegar ekki í fjárlögum næsta árs heldur aðeins heimild til ríkisins að selja húsið í opnu söluferli. Yfirlæknirinn var áður starfandi á heilsugæslunni í Laugarási sem var flutt á Flúðir í fyrra.Í svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn um fréttastofu um málið kemur fram að ráðuneytið hafi óskað eftir því við fjármála- og efnahagsráðuneytið í fyrra að læknirinn fengi forkaupsrétt að húsinu við sölu þess. Orðrétt segir í svarinu frá ráðuneytinu: „Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki átt aðra aðkomu að þessu máli en að óska eftir við fjármála- og efnah