Nítján eftirlýstir einstaklingar, sem leitað er vegna brota gegn börnum og eldra fólki, eru í brennidepli nýs ákalls á vegum EU Most Wanted. Í tilkynningu frá Europol kemur fram að ákallið nái til mála frá fjórtán löndum varðandi einstaklinga sem er leitað fyrir að hafa brotið kynferðislega á börnum eða svikið fé út úr eldri borgurum.