Snjókomu spáð víða

Með morgninum verður suðvestan kaldi eða strekkingur með snjókomu vestantil á landinu. Austantil verður hægari vindur og þurrt að kalla.Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofu Íslands.Það hlýnar og síðdegis verður úrkoman að mestu rigning eða slydda á láglendi. Fyrir austan verður lítilsháttar snjókoma.Grunnt lægðardrag á Grænlandssundi dýpkar og færist austur í dag. Á morgun verður því komin kröpp lægð skammt norður af landinu.Hún veldur hvassviðri og ofankomu þegar hún þokast suður og annað kvöld gengur í norðan stórhríð. Sunnan- og austanlands verður hægari vindur og úrkomulítið.Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu til miðnættis annað kvöld:Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil snjókoma eða slydda, en vestlægari og rigning síðdegis og hlýnar heldur. Hiti 2 til 5 stig í kvöld. Norðan 8-
Snjókomu spáð víða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar