Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað.Ljósleiðarinn er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar og langstærsti eigandi hennar er Reykjavíkurborg, en einnig eiga Akraneskaupstaður og Borgarbyggð hlut. Til að hægt sé að halda áfram með málið þarf samþykki allra hluthafa. Salan er á verkefnalista nýs meirihluta í borginni og afstaða þeirra sem stýra borginni liggur því fyrir. Minnsti hluthafinn, Borgarbyggð, er þegar búinn að samþykkja málið fyrir sitt leyti og bæjarstjórn Akraness ætlar að fjalla um málið í desember, en þar eru Sjálfstæðisflokkur og Framsókn og frjálsir í meirihluta. ÍSLENDINGAR Í FREMSTU RÖÐ Í NÝTINGU Á LJÓSLEIÐARATÆKNI Þuríður