Búast má við umferðartöfum í dag

Malbiksaðgerðir eru fyrirhugaðar við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugarvegar í suðurátt í Reykjavík milli klukkan 11 og 13 í dag. Þrengt verður niður í eina beygjurein.Milli klukkan 11 og 15 verður lokað fyrir umferð af Bústaðavegi inn á rampinn niður á Kringlumýrarbraut. „Búast má við umferðartöfum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi,“ segir á vef Vegagerðarinnar.Talsverð umferð var um Bústaðaveg í gær vegna lokana.RÚV / Ragnar Visage
Búast má við umferðartöfum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar