Átök brutust út í Barcelona á milli hópa grímuklæddra manna og lögreglu eftir að milljónir manna tóku þátt í allsherjarverkfalli á Spáni í gær, því fyrsta í fjórtán ár. Miklar truflanir urðu á samgöngum og annarri opinberri þjónustu um allt landið en kosningar eru fram undan á Spáni þann 29. nóvember.