Staðfest hefur verið að tveir eru látnir og sautján særðir, þar af fjórir lífshættulega, eftir að þriggja hæða bygging hrundi í Brooklyn-hverfinu í New York í gær. Að minnsta kosti sjö börn eru meðal hinna sautján særðu.Byggingin í Brooklyn hrundi yfir byggingarsvæði við hlið hússins þar sem búið var að taka grunn að nýju þriggja hæða íbúðarhúsi. Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar voru byggingarverkamenn að störfum þegar byggingin við hlið þeirra hrundi. ÓVÍST HVE MARGIR ERU FASTIR Meira en 250 slökkviliðsmenn hafa unnið að því í margar klukkustundir að bjarga fólki úr rústunum með aðstoð dróna, leitarhunda og vélsaga. Ekki er vitað hvort margir séu enn þá fastir og þá liggur heldur ekki fyrir hver tildrög slyssins voru. Eftirlitsmenn fara nú um nágrennið og kanna stöðugleika nærlig