74 ára gamall ítalskur maður sem var dæmdur fyrir mannrán á 8. áratugnum strauk úr stofufangelsi í Buenos Aires í Argentínu á þriðjudag. Hann er enn þá á flótta.Maðurinn, Leonardo Bertulazzi, átti við ökklaband sitt svo það sýndi áfram líkamshita og aðrar mælingar þótt hann hefði tekið það af sér. Síðan fór hann út um svalahurð á fimmtu hæð og notaði reipi og beisli til að komast niður.Bertulazzi var þekktur sprengjusérfræðingur og því fór argentíska lögreglan varlega í að meðhöndla ökklabandið ef ske kynni að hann hefði virkjað það til að springa.Hann hafði þó aðeins breytt stillingum tækisins svo lögreglan yrði þess ekki vör að hann hefði tekið það af sér. Nokkur tími leið þar til eftirlitsmenn áttuðu sig á því að tækið hefði ekkert hreyfst og könnuðu málið. MARXÍSK ÖFGASAMTÖK SEM RÆND