Sögulegar niðurstöður urðu í kosningum í Mississippi í Bandaríkjunum þegar demókratinn Scott Colom fór með sigur af hólmi í baráttunni um öldungadeildarsætið.Colom er fyrsti svarti maðurinn sem kjörinn er til öldungadeildarinnar í ríkinu í meira en hundrað og fjörutíu ár. Þá er hann fyrsti demókratinn til að taka sæti í öldungadeildinni fyrir Mississippi í 40 ár. Hann er 43 ára gamall og hefur hingað til starfað sem saksóknari.Mjótt var á mununum milli frambjóðendanna og talning atkvæða dróst því nokkuð á langinn en Colom fékk 49,2% atkvæða og mótframbjóðandi hans, sitjandi þingmaðurinn Cindy Hyde-Smith, fékk 48,7%. DEMÓKRATAR KOMNIR MEÐ 55 SÆTI Mississippi hefur verið stjórnað af hvítum íhaldsmönnum í margar kynslóðir. Sigur Coloms þykir því nokkuð óvæntur en hann þykir eitt skýrasta m