Sex eru látnir og 20 særðir eftir árás á Nasser-sjúkrahúsið í suðurhluta Gaza. Almannavarnir á Gaza greindu frá því að þeir látnu og særðu hafi verið dregnir úr rústum sjúkrahússins. Í samtali við AFP segir ísraelski herinn að verið sé að afla upplýsinga um atvikið.Ísrael og Hamas hafa ítrekað sakað hvort annað um að brjóta vopnahléið sem tók gildi í október 2025. Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gaza hafa um 1600 Palestínumenn látist frá því að vopnahléð tók gildi.Á þriðjudag féllu sjö manns, þar á meðal 13 ára drengur, í aðgerðum ísraelska hersins á Gaza-ströndinni. Herinn sagði hins vegar að skotmörk þeirra hefðu verið vígamenn. Fórnarlömb árásar meðhöndluð á Nasser-spítalanum í september.EPA / HAITHAM IMAD