„Víðtækur skilningur virðist ríkja á þeim hættum sem loftslagsbreytingar fela í sér, þótt aðgerðir skorti.“ Þetta er lykilsetning í nýútkomnu mati Loftslagsráðs á síðustu skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaragerða í loftslagsmálum. En er hún allskostar rétt? Hversu víðtækur og djúpstæður er þessi skilningur í raun? Verður ekki þvert á móti að álykta að það fólk sem ræður för, hér sem annars staðar í heiminum, skilji þetta langt í frá nógu vel - og jafnvel alls ekki? Eða hvernig má annars skýra það sinnu- og aðgerðaleysi sem ráðafólk heimsins sýnir frammi fyrir þessari vá, þegar fyrir liggur að hlýnun Jarðar stefnir hraðbyri langt yfir tvær gráðurnar með tilheyrandi hörmungum og hamförum ef ekkert er að gert? STÆRSTA ÁHÆTTAN Grípum aftur niður í sk