Þriðju og síðustu undanúrslit Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, fóru fram í Borgarleikhúsinu í beinu streymi á RÚV í kvöld. Það voru Hlíðaskóli, með atriðið Heimsendir, og Norðlingaskóli, með atriðið Frjálsari, sem tryggðu sér sæti í úrslitum.Atriði Hlíðaskóla fjallar um að tjá sig áður en það er of seint og það er í lagi að vera hræddur. Áhorfendur fylgja unglingunum Frikka og Veru sem þora ekki að tjá ást sína hvor til annars. Það brýst út uppvakningafaraldur í bekkjarpartíi sem leiðir til þess að loksins tjá Frikki og Vera ást sína á seinustu stundu… eða hvað?Atriði Norðlingaskóla fjallar um sviptingu á réttindum kvenna.Verkið er samið til heiðurs konum sem víða um heim þurfa að gjalda með lífi sínu vegna þess að þær börðust fyrir réttindum sínum.Skólarnir sem komust í