Kynferðisbrot gegn börnum er brotaflokkur sem er fyrir nokkru mættur á tækniöld. Kveiksþáttur gærkvöldsins sem fjallaði um barnaníðinga sýndi svo ekki verður um villst að símtækin geta verið vopn sem barnaníðingar á Íslandi og úti í heimi nota til að nálgast börnin okkar.María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í tæknirétti og stafrænu kynferðisofbeldi, segir að seinustu fimm ár hafi orðið verulegar breytingar á því hvernig fólk umgengst tækni heilt yfir. Þá sé ýmis stafræn tækni á borð við gervigreind notuð meira, eins hafi á undaförnum árum skapast gríðarleg eftirspurn eftir efni, bæði sé það efni af börnum og fullorðnum.„Þessi þróun er alþjóðleg og við sjáum það í tölum frá Europol og Interpol en hún er líka á Íslandi og við sjáum það líka í tölunum okkar.“ RÁÐIST Í ÝMSAR MÓTVÆGISAÐGERÐIR