Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, er hættur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborg. Hann segist ekki fá neinu framgengtHann greindi frá ákvörðun þessu í færslu á Facebook síðdegis.„Ég hef bara ekki verið alveg sáttur við hvernig þetta hefur verið,“ segir Pétur í samtali við fréttastofu.Hann segist hafa verið ósammála því sem hópurinn hafi gert, bæði hugmyndafræðinni og útfærslunni.„Auðvitað þarf að fara vel með peninga og það þarf að hagræða og það hefur verið hagrætt áður. En mér finnst asinn og hraðinn í þessu hafa gert það að verkum að það hafi verið gerð mistök og stundum gleymst að við erum að reka samfélag en ekki venjulegt fyrirtæki.“Oddvitar í borgarstjórn sitja í hópnum. Oft séu þeir ekki sammála á fundum hópnum en meirihlutinn ráði.„Það hefur alveg verið skýrt