Grindvíkingur fordæmir að ríkið vilji nú selja íbúðir í bænum til íbúa á sama verði og þær voru keyptar eftir eldsumbrot. Fasteignafélagið Þórkatla kynnti endurkaupaáætlun sína í gær og býður fólki ýmist að kaupa íbúðir sínar til baka, fá eign sína frátekna eða leigja hana á markaðskjörum.