Ríkisendurskoðun hefur verið sýknuð af kröfum staðgengils ríkisendurskoðanda sem krafðist þess að ákvörðun um tilfærslu hennar í starfi yrði felld úr gildi.Konan var sviðsstjóri stjórnsýslu- og lögfræðisviðs Ríkisendurskoðunar, og gegndi einnig starfi staðgengils ríkisendurskoðanda, en var flutt í starf sviðsstjóra nýs og sameinaðs stoðsviðs Ríkisendurskoðunar.Staðgengillinn taldi að ákvörðun um tilfærslu hennar í starfi mætti rekja til þess að hún fundaði með forseta og skrifstofustjóra Alþingis um starfsmannamál embættisins. Það gerði hún í apríl í fyrra. Hún fór svo í veikindaleyfi í maí og var tilkynnt ákvörðunin um tilfærslu í starfi í lok júlí. Engin samskipti voru milli ríkisendurskoðanda og staðgengilsins í millitíðinni.Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að ótvírætt sé að forstöðu