Önnur hver ný íbúð á höfuðborgarsvæðinu selst nú undir auglýstu söluverði og hefur hlutfallið farið hækkandi undanfarin tvö ár. Enn algengara er að eldri íbúðir seljist undir ásettu verði, eða í nær 85 prósent tilvika. Fasteignasalar segja verðlækkanir í söluferli íbúða orðnar mjög algengar.