Sala á hrísgrjónum og dósamat hefur aukist um 100 prósent og sala á eldspýtum um 200 prósent. Geymsluþolinn matur rýkur út eftir útgáfu bæklings almannavarna Verum viðbúin, að því er segir í tilkynningu frá Bónus.Bæklingurinn kom út 3. nóvember. Honum er ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig sé hægt að undirbúa sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi.Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir fólk greinilega ætla að vera viðbúið.„Mér sýnist þessi umræða hafa fengið marga til að kíkja í eldhússkápana og velta fyrir sér hvað sé til heima. Við sjáum að minnsta kosti töluvert meiri eftirspurn eftir vörum sem geymast vel.“Huga þarf að birgðunum eftir að þær eru komnar í hús, svo að maturinn fari ekki til spillis.„Allur er varinn góður.“Björgvin minnir fólk á að gleym