Líkur á flughálku í fyrramálið

Lægðardrag á Grænlandshafi þokast nær landinu með snjókomu vestantil í fyrramálið, en einnig í öðrum landshlutum. „Jafnframt hlýnar hægt og bítandi og snjókoman fer því yfir í rigningu eða slyddu á láglendi vestantil síðdegis,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að líkur eru á flughálku um suðvestanvert landið í fyrramálið, einkum í uppsveitum sunnan- og vestanlands, en einnig á stöku stað á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.Vindur verður það hægur að hann nær sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá, en úrkoman heldur áfram og því gæti komið frostregn síðdegis.
Líkur á flughálku í fyrramálið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar