Snjóframleiðsla er hafin í Bláfjöllum og voru snjóbyssurnar settar í gang í morgun. Þetta er tilkynnt á Facebook-síðu skíðasvæðisins og vísað til þess að frost síðustu daga hafi gert það að verkum að nógu góðar aðstæður væru komnar til að hefja framleiðslu. 5,7 gráðu frost mælist í Bláfjallaskála.