Landhelgisgæslan hefur tekið úr notkun hífingarspil um borð í þyrlum stofnunarinnar. Það var gert eftir að bilun kom upp í spili einnar þyrlu fyrir æfingu síðastliðið sunnudagskvöld. Verið er að kanna orsök bilunarinnar og skoða hana nánar og þegar því er lokið verða spilin væntanlega tekin aftur í notkun. Vonast er til að það verði á næstu dögum.