Hundruðum skóla bárust sprengjuhótanir

Skólastarf raskaðist um gervalla Ítalíu í dag þegar sprengjuhótanir voru sendar á hundruð skóla í landinu.Ljóst þykir að hótanirnar séu gabb og segir Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, að engin markverð ógn steðji að ítölsku skólakerfi vegna þessa.Skólar voru þó rýmdir víða þegar hótanirnar bárust en skólastarf hélt áfram þegar í ljós kom að enginn hætta væri á ferðum.Nemendur sáust víða hópast saman fyrir utan skóla á meðan rýming stóð yfir. Margir urðu að skilja eigur sínar eftir inni í skólabyggingum og gátu ekki nálgast þær fyrr en lögregla hafði lokið hættumati. Fjölmörgum nemendum tókst því ekki að gera foreldrum sínum viðvart.Giuseppe Valditara, menntamálaráðherra Ítalíu, segir að alls 312 skólum hafi borist sprengjuhótun.Sams konar hótanir voru sendar á skóla í Bretlandi og á
Hundruðum skóla bárust sprengjuhótanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar