Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta systkinanna Baldvins og Kötlu Þorsteinsbarna með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019-2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í svörum frá Baldvini Þorsteinssyni, forstjóra og öðrum stærsta hluthafa í Samherja, við spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra.Viðskiptin með hlutabréf í Samherja hófust 2019 og eru við foreldra þeirra, Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Segja má að viðskiptin hafi staðið yfir frá 2019 og fram á síðasta ár og hafa tekið miklum breytingum á þessum tíma.Í fyrsta legg viðskiptanna árið 2019 var 43% hlutur í Samherja seldur Baldvini og Kötlu. Kaupverðið var nokkurn veginn bókfært verð hlutarins, 206 milljónir evra, tæplega 28