Karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. desember vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins. Hann hafði játað brot sín en hefur nú dregið játninguna til baka og sagst hafa verið undir áhrifum lyfja þegar hann játaði. Þá hefur hann skipt um verjanda í þrígang.