Hundrað á­bendingar um lykt í Mos­fells­bæ á þremur mánuðum

Sorpa þarf að skipta um búnað í gas- og jarðgerðarstöðinni Gaju fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna bilana sem fyrirtækið segir hafa aukið lykt frá Álfsnesi. Hundrað og átján ábendingar um lykt bárust Mosfellsbæ á fyrstu níu mánuðum ársins, þar af 102 frá því í júlí. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir Mosfellinga orðna langþreytta á ástandinu. Ef ekki takist að bæta ástandið þurfi að skoða aðrar aðgerðir. Sorpa áætlar að aðgerðir til að draga úr lykt frá starfseminni kosti 407 milljónir króna.
Hundrað á­bendingar um lykt í Mos­fells­bæ á þremur mánuðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar