Lögregla hefur innsiglað Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi og Hlöllabáta á Bíldshöfða að beiðni Skattsins. Aðgerðirnar fóru fram í morgun og fyrir hádegi í dag. Vísir greinir frá innsiglun Hamborgarafabrikkunnar. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir við RÚV að lögregla hafi aðstoðað Skattinn við að innsigla staðinn. Hann vill ekki tjá sig frekar um málið. Snorri Olsen ríkisskattstjóri vill ekki staðfesta...