Tjaldar því sem til er eftir innbrot

Gullsmiðurinn í Mjódd hefur unnið hörðum höndum að enduropnun verslunarinnar eftir innbrot aðfaranótt mánudags.„Þetta er allt að gerast, við ætlum að reyna að opna í dag og vera með 11.11. afslátt og svona, reyna bara að tjalda því til sem er til,“ segir Jón Tryggvi Þórsson, eigandi Gullsmiðsins.Lögregla rannsakar innbrotið þar sem minnst tveir svartklæddir menn brutu rúðu og komust fram hjá öryggiskerfi verslunarinnar. Þeir tóku sér góðan tíma, eina og hálfa klukkustund, og höfðu allt gull á brott með sér.Jón Tryggvi telur tjónið vera tugi milljóna króna og hefur þurft að fylla á lager verslunarinnar.„Ég er búinn að vera að fara hérna til heildsala og gullsmiða og svona þannig það er búið að tína eitthvað til. Þeir tóku í sjálfu sér bara gullið sko þannig ég er svona búinn að vera á útopn
Tjaldar því sem til er eftir innbrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar