Forvarnir, ráðgjöf og stuðningur við þolendur eru mikilvæg skref í baráttunni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.Viðfangsefni Kveiks í gærkvöld var kynferðisbrot gegn börnum.Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið, og aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara. BÖRN BEITT TÆLINGU OG OFBELDI Börn eru í auknum mæli beitt tælingu, kynferðislegu ofbeldi og fjárkúgun á samfélagsmiðlum segir Indíana Rós Ægisdóttir, kynfræðingur og verkefnastýra Jafnréttisskólans hjá Reykjavíkurborg.„Það er kannski verið að spjalla við einhvern ungling, þykjast vera jafnaldrar og eitthvað svona voða sætur einstaklingur. Biður kannski um einhverjar kynferðislegar myndir. Svo bara um leið og myndin er komin hefst fjárhagslega kúgunin eða annars konar hótanir.“ Fræðslumyndband um